Fréttir

Dagur leikskólans 6. febrúar

Skrifstofan lokuð 6. febrúar

Málþing um fyrstu þrjú ár innleiðingar farsældarlaganna

SSNV ræður Söru Björk Þorsteinsdóttur sem verkefnastjóra farsældar á Norðurlandi vestra

Úttekt á aðgengi nemenda að hljóðbókum með áherslu á nýbúa

Á vef Stjórnarráðsins birtist í gær frétt um að nýlega hefði verið undirritaður samningur milli menningar- og viðskiptaráðuneytisins, mennta- og barnamálaráðuneytisins og ARCUR um úttekt á aðgengi nemenda að hljóðbókaefni á íslensku, bæði námsefni og yndislestrarefni. Úttektinni er ætlað að varpa ljósi á aðgengi leik-, grunn- og framhaldsskólanema að hljóðbókum og mögulegar hindranir. Vilja ráðuneytin líta sérstaklega til nemenda sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Hlustun samhliða því að fylgja eftir texta bókar getur auðveldað þeim að læra íslensku og flýtt fyrir námi þeirra. Í úttektinni verður horft til aðgengis að efni á Hljóðbókasafni, Rafbókasafni, Borgarbókasafni, á skólabókasöfnum, hjá Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu, á efnisveitum eins og Storytel og hlusta.is, og á námsefnis- og skólavefjum. Niðurstöður úttektarinnar munu fela í sér tillögur um hvernig æskilegt sé að aðgengi nemenda að þessum gögnum verði og hvernig aukið aðgengi geti þjónað ólíkum hópum s.s. þeim sem eru hæglæsir (án greiningar), til stuðnings við íslenskunám íbúa af erlendum uppruna og til almennrar hvatningar við íslensku-/lestrarnám. Vinna úttektaraðila hófst í desember 2024 og stefnt er að því að niðurstöðum, tillögum og kostnaðarmati verði skilað fyrir marslok 2025. Þessu verkefni ber að fagna og verður áhugavert að sjá niðurstöðurnar og hverju þær muni skila fyrir þjónustuþega.

Öruggara Norðurland vestra

Jólakveðja

Starfsfólk Félags- og skólaþjónustu A-Hún. óskar íbúum Austur-Húnavatnssýslu sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.

Tungumálahnappur á heimasíðu

Í þeirri vinnu að gera heimasíðuna aðgengilegri fyrir almenning hefur verið settur Google þýðingarhnappur á síðuna. Þar er hægt að breyta um tungumál á því efni sem er á síðunni. Fjöldi tungumála er nú þegar í boði og ef notendur hafa ábendingu um að bæta megi við tungumáli má senda hana á fraedslustjori@felahun.is

Ný menntastefna á Skagaströnd

Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti menntastefnu sveitarfélagsins á fundi sínum 13. nóvember s.l. Stefnan hafði áður fengið umfjöllun í Fræðslunefnd. Menntastefna er framtíðarsýn og viljayfirlýsing sveitarfélagsins í skóla- og frístundamálum. Hún sýnir hvaða gildum skólar sveitarfélagsins vinna eftir og hvaða áherslur skulu hafðar að leiðarljósi. Gildin eru vellíðan, hamingja, samfélagsleg ábyrgð, sjálfbærni, metnaður og samvinna. Undirmarkmið stefnunnar eru læsi í víðum skilningi, sköpun og samstarf. Skólar sveitarfélagsins eru Grunnskólinn Höfðaskóli, Leikskólinn Barnaból og Tónlistarskóli Austur Húnvetninga. Hægt er að kynna sér menntastefnuna hér.

Verkefnastjóri farsældar á Norðurlandi vestra

SSNV, samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa laust til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra í málefnum farsældar á Norðurlandi vestra. Um er að ræða starf til tveggja ára sem ætlað er að vinna að markmiðum samnings SSNV við ráðuneyti mennta- og barnamála. Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember n.k. Upplýsingar um starfið má sjá í auglýsingu á alfred.is og nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir, sigga@mognum.is