- Félags- og skólaþjónusta A-Hún
- Helstu hlutverk
- Hafa samband
Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndar ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn:
a. búi við óviðunandi uppeldisaðstæður,
b. verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða
c. stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.
Sérstök tilkynningaskylda er lögð á fólk sem starfar með börnum, t.d. starfsmenn skóla og heilsugæslu, að ógleymdri lögreglunni.
Á dagvinnutíma getur fólk snúið sér beint til starfsmanna barnaverndar á skrifstofu Félags- og skólaþjónustunnar með tilkynningar, spurningar eða vangaveltur varðandi barnaverndarmál með því að hringja í 4554170.
Hægt er að tilkynna beint hér á heimasíðunni, sjá hnappa á forsíðu.
Fólk getur hringt í Neyðarlínuna 112 og tilkynnt um óviðunandi aðstæður barna. Neyðarlínan er opin allan sólarhringinn. Starfsmenn 112 meta hvort henni verði komið strax á framfæri til starfsmanns barnaverndarþjónustu eða hvort beðið verði til næsta virka dags. Sá sem hringir gefur upp nafn sitt, nafn og dvalarstað barnsins, ástæður tilkynningarinnar og aðrar upplýsingar sem starfsmenn neyðarlínu spyrja um. Þeir hafa fengið sérstaka þjálfun hjá Barna- og fjölskyldustofu til að sinna þessu verkefni.
Nokkur atriði sem foreldrar, afar og ömmur, frændur og frænkur eða nágrannar, skyldu hafa í huga þegar þau velta fyrir sér hvort tilkynna skuli um aðstæður barns eða unglings: Eru vísbendingar um:
Flestir vita út frá brjóstviti sínu hvort barn býr við óviðunandi aðstæður vegna vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra, eða hvort ástæða sé til að óttast að barn stefni heilsu sinni eða þroska í hættu með hegðun sinni.
Ef maður telur svo vera ber að hafa samband við barnavernd sem hefur það hlutverk að meta hvort ástæða sé til að blanda sér í málið og tryggja að barnið og foreldrarnir fái nauðsynlega aðstoð.
Starfsmenn Neyðarlínu 112 og starfsmenn barnaverndarþjónustu eru bundnir trúnaðarskyldu. Í barnaverndarlögunum er einnig fjallað um nafnleynd þess sem tilkynnir. Almenningur, ættingjar eða aðrir nákomnir, geta óskað nafnleyndar gagnvart öðrum en starfsfólki barnaverndarþjónustu. Þá er slík beiðni virt nema sérstakar ástæður mæli gegn því. Opinberir aðilar t.d. skóli, leikskóli, sjúkarhús eða heilbrigðisstofnun, tilkynna í embættis nafni og njóta því ekki nafnleyndar.