Móttaka rafrænna gagna og trúnaðarupplýsinga

Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnvetninga tekur á móti rafrænum gögnum og trúnaðarupplýsingum í gegnum Signet transfer.

Til þess að skila gögnum í gegnum Signet transfer þarf að fara á Signet transfer síðu og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Valið er að senda á fyrirtæki og Félags- og skólaþjónusta Austur Húnvetninga valin úr fellilista. Þar er svo hægt að velja hvaða hópur fær gögnin. Hægt er að velja um eftirfarandi hópa:

  • Almennt-bókari og þá fara gögn til skrifstofu á Skagaströnd,
  • Barnavernd og þá fara gögn til starfsfólk í barnaverndarþjónustu
  • Félagsþjónusta og málefni fatlaðra og þá fara gögn til starfsfólks félagsþjónustunnar
  • Skólaþjónusta og þá fara gögn til starfsfólks skólaþjónustu
  • Sæborg og þá fara gögn til hjúkrunarforstjóra

Frekari leiðbeiningar veitir starfsfólk Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnvetninga í síma 4554170 eða í netfanginu felahun@felahun.is