Fréttir

Ný menntastefna á Skagaströnd

Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti menntastefnu sveitarfélagsins á fundi sínum 13. nóvember s.l. Stefnan hafði áður fengið umfjöllun í Fræðslunefnd. Menntastefna er framtíðarsýn og viljayfirlýsing sveitarfélagsins í skóla- og frístundamálum. Hún sýnir hvaða gildum skólar sveitarfélagsins vinna eftir og hvaða áherslur skulu hafðar að leiðarljósi. Gildin eru vellíðan, hamingja, samfélagsleg ábyrgð, sjálfbærni, metnaður og samvinna. Undirmarkmið stefnunnar eru læsi í víðum skilningi, sköpun og samstarf. Skólar sveitarfélagsins eru Grunnskólinn Höfðaskóli, Leikskólinn Barnaból og Tónlistarskóli Austur Húnvetninga. Hægt er að kynna sér menntastefnuna hér.

Verkefnastjóri farsældar á Norðurlandi vestra

SSNV, samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa laust til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra í málefnum farsældar á Norðurlandi vestra. Um er að ræða starf til tveggja ára sem ætlað er að vinna að markmiðum samnings SSNV við ráðuneyti mennta- og barnamála. Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember n.k. Upplýsingar um starfið má sjá í auglýsingu á alfred.is og nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir, sigga@mognum.is

Uppfærsla á heimasíðu

Unnið er að því að gera heimasíðuna notendavænni og einfaldari. Meðal annars eru komnar inn upplýsingar um móttöku rafrænna gagna og trúnaðarupplýsinga, rafrænar umsóknir til félagsþjónustu og rafrænar tilkynningar til barnaverndar. Ekki eru öll eyðublöð félagsþjónustunnar orðin rafræn ennþá og er hægt að hlaða þeim niður, fylla þau út og vista í tölvunni sinni og senda svo rafræn í gegnum Signet transfer. Á næstu vikum verður unnið að frekari umbótum á síðunni.

Fræðslustjóraskipti

Í dag tók Dagný Rósa Úlfarsdóttir formlega við lyklavöldum sem fræðslustjóri Austur-Húnavatnssýslu af Þórdísi Hauksdóttur. Þórdísi eru þökkuð vel unnin störf síðustu ár sem fræðslustjóri og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Ráðning fræðslustjóra

Ræsting

Laus er staða við ræstingar í sameign Hnitbjarga á Blönduósi og á skrifstofu Félags- og skólaþjónustu A-Hún.

Fræðslustjóri - starf laust til umsóknar

Forvarnarverkefni Norðurlands vestra

Nú hefur forvarnarverkefni Norðurlands vestra litið dagsins ljós. Markmið verkefnisins var að búa til sameiginlega forvarnaráætlun fyrir Norðurland vestra til fjögurra ára sem myndi stuðla að farsæld og forvörnum allra barna á svæðinu.

Leiguíbúð fyrir aldraða í Hnitbjörg Blönduósi