Barnaverndarþjónusta Mið-Norðurlands

 

Þann 1. janúar 2023 tók Barnaverndarþjónusta Mið-Norðurlands til starfa. Þjónustan er samstarf fimm sveitarfélaga á Norðurlandi, frá Hrútafirði í vestri að Eyjafirði í austri. Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands og ber ábyrgð á barnavernd í nánu samstarfi við aðildarsveitarfélögin. Íbúar sem heyra undir þjónustuna eru 9.181, þar af 1.991 börn (tölur frá 1. janúar 2024).

Eftirfarandi sveitarfélög standa að Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands:

Fjallabyggð - fjallabyggd.is

Húnabyggð - hunabyggd.is

Húnaþings vestra – hunathing.is

Skagafjörður - skagafjordur.is

Skagaströnd – skagastrond.is

Starfsmenn þjónustunnar eru níu og samanstanda af starfsmönnum fyrri barnaverndarnefnda sem lagðar voru niður um áramótin 2022-2023 með nýrri löggjöf. Félagsmálastjórar umræddra sveitarfélaga mynda fagráð þjónustunnar og stýra mótun hennar. Vikulegir meðferðarfundir ákvarða málsmeðferð einstakra barnaverndarmála þar sem allir starfsmenn þjónustunnar mynda heildstætt teymi þekkingar, menntunar og reynslu.

Anton Sheel Birgisson sálfræðingur
Berglind Róbertsdóttir ráðgjafi í barnavernd
Helga Helgadóttir ráðgjafi félagsþjónustu
Helga Rut Hjartardóttir ráðgjafi í barnavernd
Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar
Margrét Petra verkefnastjóri í barnavernd
Sara Lind Kristjánsdóttir félagsmálastjóri
Sigrún Líndal Þrastardóttir ráðgjafi og iðjuþjálfi
Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Valdís Ósk Óladóttir ráðgjafi í barnavernd
 

Barnaverndarþjónusta Mið-Norðurlands er einnig aðili að Umdæmisráði landsbyggðanna, en þangað færast mál ef taka þarf ákvarðanir í andstöðu við foreldra og börn.

Yfirmaður þjónustunnar er Rakel Kemp Guðnadóttir, leiðtogi farsældar, fræðslu og ráðgjafar Skagafjarðar. Fólk getur hringt í Neyðarlínuna, 112, og tilkynnt um óviðunandi aðstæður barna. Neyðarlínan er opin allan sólarhringinn.

Frekari upplýsingar um þjónustuna verða settar á heimasíðu sveitarfélaganna þegar það á við. Nánari upplýsingar veita félagsmálastjórar aðildarsveitarfélaga.

 Hlutverk Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands

Ef barn býr við óviðunandi aðstæður vegna:

  • vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra
  • áreitni eða ofbeldis af hálfu annarra
  • eða barn stefnir heilsu og þroska í hættu með hegðun sinni

kemur í hlut barnaverndarþjónustu að tryggja að barnið og fjölskyldan fái nauðsynlega aðstoð. Taka þarf eftir atvikum formlega ákvörðun um að hefja könnun á málinu. Síðan eru málefni barnsins unnin á grundvelli laga um barnavernd.

Börn og foreldrar njóta skýrra réttinda við vinnslu slíkra mála.
Heimildir barnaverndarþjónustu eru skilgreindar í lögum og tilteknar skyldur lagðar á starfsmenn hennar. Alltaf er leitast við að tryggja réttaröryggi fjölskyldna og áhersla lögð á góða samvinnu foreldra og starfsfólks.

Tenglar:

Barna- og fjölskyldustofa
Lög og reglugerðir um barnaverndarmál (sjá Barna- og fjölskyldustofu).