04.05.2020
Nú stendur til að aflétta að hluta þær takmarkanir sem hert samkomubann hefur gilt um vegna COVID-19 og verður það gert í litlum skrefum. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast þó óbreyttar. Við biðlum til fólks að panta tíma áður en komið er á skrifstofuna.
10.03.2020
Velferð og heilsa starfsfólks og skjólstæðinga er í forgangi. Miða áætlanir og viðbrögð að því að takmarka eins og kostur er að starfsfólk veikist og/eða smiti aðra starfsmenn og að samfélagið í heild verði í stakk búið til að takast á við afleiðingar veirunnar. Því óskum við eftir því að skjólstæðingar og starfsfólk reyni eftir fremsta megni vinna úr málum í gegnum síma eða tölvupóst, mikilvægt er að halda fundahöldum í lágmarki. Þá er hægt að skilja eftir erindi í póstkassa í anddyri.
Bestu kveðjur
Ásdís Ýr Arnardóttir, félagsmálastjóri, asdis@felahun.is s. 455-4170/455-4171/863-5013
Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri, thordis@felahun.is, s. 455-4174/661-5812
Ásta Þórisdóttir, verkefnastjóri – ráðgjafi, asta@felahun.is, s. 455-4172/ 893-4188
Sigrún Líndal, iðjuþjálfi – ráðgjafi, sigrun@felahun.is, s. 455-4173/ 844-5013
19.02.2020
Leik- og grunnskólar í Austur Húnavatnssýslu, Húnaþingi vestra og leikskóli Strandabyggðar hafa um nokkurt skeið unnið að læsisstefnu skólanna. Markmiðið með sameiginlegri læsisstefnu var að samræma kennsluhætti og námsmat og efla læsi.